Svartir fuglar

Glænýtt dansverk frumsýnt á List án landamæra í Tjarnarbíói


Svartir fuglar er nýtt dansverk eftir Láru Stefánsdóttur spunnið út frá ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur, úr bókinni sem nefnist “Sjáðu, sjáðu mig, það er eina leiðin til að elska mig”, og er samið sérstaklega fyrir Láru Þorsteinsdóttur. 


Öll ættu að geta tengt við ljóðin því flest  leitast við á lífsleiðinni að tengjast sinni innri fegurð, sínum kjarna, sannleika en þurfa oftar en ekki að takast á við allskonar skuggahliðar og tilfinningaárásum í leitinni að ljósinu, gleðinni, ástinni, kærleikanum.

  

Danshöfundur: Lára Stefánsdóttir

Ljóðskáld og upplestur: Elísabet Jökulsdóttir

Dansarar: 

Lára Þorsteinsdóttir

Íris Ásmundardóttir

Sigurður Edgar Andersen


Ljósa/tæknimaður: Arnar Ingvarsson

Samsetning tónlistar: Stefán Franz Guðnason

Ljósmyndari: Þorsteinn J. Vilhjálmsson