Leiksýningar
LEIKVERK
Athugið að allar sýningar í Tjarnarbíó hafa stuttan sýningartíma og því mikilvægt að bóka tímanlega
SUND
Sundferð er hlaðin skrifuðum og óskrifuðum reglum og fagurfræði. Á skiltum erum við beðin um að þvo okkur um allan líkamann og drekka vatn. Við störum ekki á líkama annarra í sturtum og tökum mismikinn þátt í pottaspjallinu. Sum okkar setja handklæðið alltaf á sama stað í handklæðarekkann. Margir eiga uppáhaldssturtu og ófrávíkjanlega rútínu. Sviðsverkið SUND er samsköpunarsýning unnin út frá sundlaugarmenningu Íslands og verða fimm flytjendur á sviði. Verkið verður sjónrænt og er listrænt staðsett á milli dansverks og leikverks þar sem gjörðir í leikmynd og leikur með vatn er í forgrunni.
Frumsýnt 31.ágúst 2023.
PABBASTRÁKAR
Pabbastrákar er einlægt gamanverk þar sem föðurhlutverkið og þróun þess er skoðað. Hvernig hefur föðurhlutverkið breyst, hvernig elur karlmaður upp annan karlmann og hvernig pabbar verðum við? Pabbastrákar er leikhúsverk í uppsetningu sviðshöfundanna Hákons Örn Helgasonar og Helga Gríms Hermannssonar.
Kveikjan að verkinu varð til þegar Hákon uppgötvaði safn dagbóka frá pabba sínum allt frá árinu 1982 og hvernig dagbækurnar skorti allar lýsingar á tilfinningum og innhéldu einungis staðreyndir um dagleg verk hvers dags.
Bakgrunnur leikhópsins liggur að miklu leyti í gríni og verður því beitt óspart, enda er grín oft besta leiðin til að fjalla um alvarleg málefni.
Frumsýning 21.september 2023
STROKE
Stroke er nýtt heimildaverk eftir Virginiu Gillard og sviðslistahópinn Trigger Warning.
Virginia er atvinnutrúður sem vann um árabil á sjúkrahúsum með langveikum börnum. Fimmtug fékk hún heilablóðfall og varð fyrir mál- og verkstoli svo nú er hún hinumegin við borðið.
Í verkinu mun Virginia, sem trúðurinn Cookie, miðla upplifun sinni og segja sína sögu. Cookie á sviðið en allt efni sem fjallar um Virginiu sjálfa kemur fram í gegnum aðra miðla s.s. hljóðmynd (viðtalsbúta frá 2013), myndbrot af æfingum eða viðtöl við aðstandendur. Mótleikari Cookie á sviði er annar trúður, sem vinnur sem sviðmaður og er leikinn af eiginmanni Virginiu, Sæmundi. Hann hjálpar Cookie við að átta sig á hvar hún er stödd í sýningunni, vinnur sem hvíslari, breytir sviðsmyndinni og veitir henni tilfinningalegan stuðning. Saman leika trúðarnir eftir minningabrot frá fyrstu vikunum eftir heilablóðfallið til að gefa innsýn inn í hvernig það var fyrir Virginiu að takast á við áfallið.
Verkið er um 70 mín að lengd og er á ensku.
Frumsýning er 12.október 2023
KANNIBALEN
Kannibalen er nýtt danskt verðlaunaverk eftir Johannes Lilleøre byggt á sannsögulegum atburðum.
Armin Meiwes virðist á yfirborðinu nokkuð venjulegur maður. Hann starfar sem tölvunarfræðingur og slær garð nágranna sinna á sumrin. Armin á sér þó lítið leyndarmál og leitar að einhverjum sem getur hjálpað honum að láta draum sinn rætast: Að éta aðra manneskju. Í ársbyrjun 2001 kemst hann í samband við Bernd-Jürgen, ungan verkfræðing frá Berlín. Eftir nokkurra mánaða spjall ákveða þeir að hittast. Bernd-Jürgen á sér nefnilega líka eina ósk. Hann vill vera étinn af annari manneskju.
Kannibalen er í senn harmræn ástarsaga og óþægileg hrollvekja, einstakt
leikrit um dýpstu kima manneskjunnar. Verkið var frumflutt árið 2022 í Det Kongelige Teater og í kjölfarið valið leikrit ársins á dönsku sviðslistaverðlaununum.
Varúð: Í sýningunni er fjallað um gróft ofbeldi.
Höfundur: Johannes Lilleøre
Leikstjórn: Adolf Smári Unnarsson
Leikarar: Fjölnir Gíslason og Jökull Smári Jakobsson
Ljósahönnun og tæknilegar útfærslur: Magnús Thorlacius.
Tónlist: Ronja Jóhannsdóttir.
Þýðing: Adolf Smári Unnarsson og Júlía Gunnarsdóttir
Ljósmyndir og plakat: Hörður Sveinsson
Grafísk hönnun: Einar Hrafn Stefánsson
Frumsýning 19.janúar 2024.
FÉLAGSSKAPUR MEÐ ÓKUNNUGUM
Gunnar Smári missti foreldra sína ungur. Hann ólst upp á Tálknafirði og upplifði sterkt hvernig íslenskt samfélag getur brugðist við sorg af máta sem einkennist af meðvirkni og skorti á samtali við náungann. Verkið er gamansamur en einlægur einleikur sem segir frá ungum manni sem hefur einangrað sig því hann veit ekki hvernig hann á að takast á við sorg.
Frumsýning verður 18.apríl 2024
ÁFRAMHALDANDI SÝNINGAR
ÉG LIFI ENN-SÖNN SAGA.
Vegna gríðarlegrar eftirspurnar, verður sýningin aftur sett á svið á vormánuðum. Sýningin hefur kveikt á miklum umræðum og hefur verið stappfullt á allar umræður eftir sýningar í vetur. Yfir 30 manns stíga á svið í þessari ljóðrænu sýningu sem fjallar um síðasta æviskeiðið.
Endurfrumsýnt vorið 2024
HVAÐ EF SÓSAN KLIKKAR
Gunnella Hólmarsdóttir kemur aftur með stuð-saumaklúbba sýninguna ,,Hvað ef sósan klikkar” þar sem hún býður áhorfendum í ,,beina útsendingu" í sjónvarpssal þar sem hún ætlar að elda hamborgarhrygg og allt meðfylgjandi á 60 mínútum og líta óaðfinnanlega út á meðan hún gerir það. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig það fer.
Endurfrumsýnt 2.mars 2024
HULIÐ
Við höfum flest upplifað eitthvað óútskýranlegt. Þú hugsaðir til vinkonu þinnar og hún hringdi stuttu seinna. Þú varst utan við þig við aksturinn en eitthvað hnippti í þig rétt áður en þú keyrðir á. Þú heyrðir manninn þinn snúa lyklinum í skránni og ganga inn en svo kom hann ekki heim fyrr en tíu mínútum seinna.
Höfundur verksins „Hulið“ ólst upp með konum sem sáu lengra en nef þeirra náði, hlustuðu á náttúruna, töluðu við huldar persónur og virtust fá hjálp og aðstoð úr öllum áttum.
Þetta magnaða og einlæga leikverk kveikir í lönguninni til að vita meira um hulin öfl, huldufólk og tengjast náttúrunni. Enda, þegar vel er að gáð, krefst náttúran þess að við berum virðingu fyrir henni.
Endurfrumsýnt 7.desember 2023