Soft shell

Marglaga leikvöllur skynjunar

Soft Shell býður áhorfendum inn í einkennilegan undraheim þar sem hið lífræna mætir hinu vélræna. Íbúar hans kanna umhverfi sitt og hvort annað af næmni og mýkt og okkur er leyft að fylgjast með tvíræðum samskiptum sem verða til þegar nánd og umhyggja byggja á kerfum og mynstrum frekar en tilfinningum. Listræna teymi verksins sækir innblástur í fagurfræði og inntak ASMR myndbanda og skoðar í gegnum þá linsu hvort og hvernig sé hægt að vekja upp sömu tilfinningar í samhengi lifandi flutnings þar sem líkamar mæta mismunandi áferðum, litum og formum. Verkið veltir upp spurningum um merkingu og merkingarleysi, um innihaldslausa nánd, leiki án ánægju, samkennd án tengsla, veruleika án raunveruleika.

Katrín Gunnarsdóttir er margverðlaunaður danshöfundur sem hefur tekið þátt í fjölmörgum verkefnum hérlendis sem og víða erlendis og hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar. Katrín hefur mest unnið verk fyrir svið en einnig innsetningar í söfnum og óhefðbundnum rýmum. Síðustu ár hefur Katrín unnið að því að byggja upp hreyfitungumál og myndmál þar sem mýkt, hlustun, síbreytileg hreyfing og samruni líkama við umhverfi sitt leika lykilhlutverk.

Danshöfundur og listræn stjórnun: Katrín Gunnarsdóttir

Skapað í samstarfi við dansara: Ásgeir Helgi Magnússon, Saga Kjerúlf Sigurðardóttir

Leikmynd- og búningahönnuður : Eva Signý Berger

Ljósahönnuður: Jóhann Friðrik Ágústsson

Hljóðhönnuður: Brett Smith

Dramatúrgísk ráðgjöf: Rósa Ómarsdóttir

Mynd: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Grafík: Sveinn Steinar Benediktsson

Framleiðandi: Heba Eir Kjeld

Í uppfærslu: Katrín Gunnarsdóttir/Menningarfélagið Tær

Með stuðningi frá: Ásmundarsalur, Reykjavík Dance Festival & Dansverkstæðið, Listaháskóli

Íslands, wpZimmer, Theatre ROXY.

Styrkt af: Sviðslistasjóði, launasjóði sviðslistafólks og Reykjavíkurborg

Um fyrri verk:

„Tregafullt, einlægt, sárt og blítt, – all­ur skal­inn, eins og mann­eskj­an **** “ -Mbl,

NH, um Crescendo 2018

„Ég hreifst með og mátti vart blikka augum til að missa ekki af neinu. Þróun hreyfinganna var

hæg og yfirveguð, svo nálgaðist fullkomnun.“ -hugras.is, um Crescendo 2018

„Eins og af öðrum heimi…hárbeitt samfélagsrýni **** “ SGM – fbl, um Þel, 2019

https://www.katringunnarsdottir.com/  

An artificial landscape of sensorial strangeness

Soft Shell is a duet created with and performed by Ásgeir Helgi Magnússon and Saga Kjerulf Sigurðardóttir, set in an artificial landscape. In Soft Shell, two inhabitants practice intimacy through intricate patterns and affective labour, looking for a voyeuristic safe haven for their soft encounters.

Drawing from the aesthetics and content of ASMR videos, Soft Shell explores how and if these sensations can be evoked as bodies interact with sound and installations that play with various textures, shapes, colors and different levels of transparency. The audience is invited into a quiet, strange world where they are allowed to witness ambiguous and uncanny relations, playful unhappiness and artificial empathy.

Katrín Gunnarsdóttir is an multi award-winning Icelandic choreographer, whose work focuses on soft encounters, using embodied listening and affective labour of the dancer to create intricate choreographic landscapes. Katrín creates work for stage but also creates installations in galleries, museums and public spaces. Her performances have been shown across Iceland and in Europe.

Concept and choreography: Katrín Gunnarsdóttir

Created with and performed by: Ásgeir Helgi Magnússon, Saga Kjerúlf Sigurðardóttir

Set Design and Costume : Eva Signý Berger

Light design: Jóhann Friðrik Ágústsson

Sound design: Brett Smith

Dramaturgical Advice: Rósa Ómarsdóttir

Photo: Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir

Graphic design: Sveinn Steinar Benediktsson

Dramaturgical Advice: Rósa Ómarsdóttir

Producer: Heba Eir Kjeld

A production of: Katrín Gunnarsdóttir/Menningarfélagið Tær

With the support of: Ásmundarsalur, Reykjavík Dance Festival & Dansverkstæðið, Iceland

University of the Arts, wpZimmer, Theatre ROXY.

Funded by: Iceland Performing Arts Funding, Artists´ Salary Fund and City of Reykjavík

About previous works:

“Crescendo is bittersweet, sincere, painful and tender – the whole emotional scale like the

human being.” NH – mbl ****

“Thel is an experience that gives you peace and hope of a better world” SGM – fbl ****

https://www.katringunnarsdottir.com/