....og hvað með það?

Eftir vel heppnað sýningartímabil í vor, kemur Lab Loki í Tjarnarbíó í september og sýnir aftur ....og hvað með það?”

Tveir menn eiga stefnumót í Kópavogi.
Allt getur gerst .....og ýmislegt gerist.
Gyllt skordýr og forarengill, - lindargull og eldfluga.
Kabarett..... og ljóshafið, yndi næturinnar.
Ástarsaga aldanna, torfærur og dans.
Mörk og markaleysi.
Siðferðileg mörk, líkamleg mörk og handboltamörk
......og hvað með það.

Þetta er samsköpunarverkefni, samið og leikstýrt af Rúnari Guðbrandssyni. Flytjendur eru Árni Pétur Guðjónsson og Sigurður Edgar Andersen.
Arnar Ingvarsson sér um ljós og hljóð.