Líkaminn er skál - dansverk með leir

LÍKAMINN ER SKÁL 

Dansverk með leir 

eftir 10 FINGUR og Matteo Fargion

Allt sem við finnum, hugsum og segjum upplifum við í líkamanum. Líkaminn man allt. Hann er skálin sem heldur utanum allt það sem við erum og skynjum. 

Rauði þráður sýningarinnar Líkaminn er skál er endurtekningin og kerfin sem eru allt í kringum okkur og inni í okkur. Hjartslátturinn, öndunin, frumurnar, takturinn í deginum, takturinn í náttúrunni, að við vöknum, burstum tennurnar og fáum okkur kaffi. Sýningin byggir á tilfinningunni sem kemur í kjölfar þess að takturinn í þessum kerfum fer úr jafnvægi. Þetta getur verið þegar við missum ástvin, heilsuna eða  eldgos brýst upp í bakgarðinum. Eitthvað gerist sem kippir jörðinni undan fótum okkar og breytir öllu sem á eftir kemur. Allt sem okkur hefur fundist gefið er ekki eins og það var. Sumarið kemur ekki lengur á eftir vorinu. Frumur líkamans missa taktinn og fara á yfirsnúning. Að vera á lífi er skyndilega ekki sjálfgefið. Allt í einu er áþreifanlegt hvernig eitt andartak getur breytt öllu. En mitt í þessari óvissu og óreiðu fæðist eitthvað alveg nýtt. 


Líkaminn er skál  á óhlutbundinn hátt í ólínulegri frásögn þar sem líkamleg upplifun er tjáð með leir og takti. 

Leikhópurinn 10 fingur hefur um árabil sérhæft sig í listsköpun á mörkum leikhúss og myndlistar. Hópurinn hefur unnið með mismunandi efni í fyrri sýningum sínum, eins og pappír, plast eða mold og rannsakað ólíka eiginleika þeirra og eðli og hvernig megi gefa þeim líf með hreyfingu og líkamstjáningu. Í sýningunni Líkaminn er skál tekst hópurinn á við leir en blandar nú aðferðum sínum saman við aðferðafræði sviðslistmannsins Matteo Fargion, sem er annar aðal höfundur sýningarinnar. Aðferðafræði hans byggir á ákveðnum formúlum úr tónsmíðum sem eru yfirfærðar á hreyfingu og líkamstjáningu og á því mjög vel við vinnuaðferðir leikhópsins 10 fingur. Líkaminn er skál er fyrir fullorðna ólíkt fyrri verkum hópsins. 


Aðstandendur: 

Höfundar: Helga Arnalds og Matteo Fargion,

Meðhöfundar: Eva Signý Berger og Valgerður Rúnarsdóttir

Leikstjórn og kóreógrafía: Matteo Fargion og Helga Arnalds

Leikmynda- og búningahönnun: Eva Signý Berger og Helga Arnalds

Myndbönd: Helga Arnalds og Eva Signý Berger

Texti: Helga Arnalds, Vala Rúnarsdóttir og Eva Signý Berger

Tónlist: Matteo Fargion

Sönglög: Francesca Fargion

Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson

Framleiðsla: 10 fingur og MurMur Productions; Ragnheiður Maísól Sturludóttir og Kara Hergils

Mynd á plakati: Margret Seema Takyar

Grafísk hönnun: Úlfur Arnalds

Skálar: Helga Arnalds, Eva Signý Berger og Valgerður Rúnarsdóttir

MY BODY IS A BOWL  - A dance piece with clay 

By 10 fingers and Matteo Fargion

Everything we feel, think, and say we experience in the body. The body remembers everything. It is the bowl that holds all that we are and perceive. 

The systems all around us and inside us, like the heartbeat, breathing, splitting of the cells, the rhythm of the day, the rhythm of nature, the habit of waking up, brushing our teeth, and having coffee, all of these repetitions are the triggers for the performance The body is a bowl and especially when the rhythm in these systems goes out of balance. This can be when we lose a loved one, our health, or a volcanic eruption breaks out in our backyard. Something happens that shakes the ground from under our feet and changes everything that follows. Everything we have felt given is not what it was. Summer no longer comes after spring. The body's cells lose their rhythm and go into overdrive. Being alive is not a given anymore.  Yet in this uncertainty, something completely new is born. 

 My body is a bowl abstractly addresses the subject in a non-linear narrative, expressing physical experience through clay and rhythm. 


The 10 Fingers have for years specialized in performances on the border of theater and visual art. The group worked with different materials in their previous performances, such as paper, plastic, or soil, studying their nature and how to give them life on stage through movement and body language. In the performance My Body is a Bowl, the group is working with clay. This time mixing its methods with the methodology of stage artist and composer Matteo Fargion, who brings certain formulas from music composition and transfers them to movement and choreography which fits very well with the working methods of 10 fingers. My Body is a Bowl is a performance for adults, unlike most of the group's previous works. 


Authors: Helga Arnalds and Matteo Fargion,

Co-authors: Eva Signý Berger and Valgerður Rúnarsdóttir

Direction and choreography: Matteo Fargion & Helga Arnalds

Text: Helga Arnalds, Vala Rúnarsdóttir & Eva Signý Berger

Performers: Helga Arnalds and Valgerður Rúnarsdóttir

Set and costume design: Eva Signý Berger & Helga Arnalds

Choreographer: Matteo Fargion in collaboration with Helga Arnalds and Valgerður Rúnarsdóttir

Videos: Eva Signý Berger and Helga Arnalds

Music: Matteo Fargion

Songs: Francesca Fargion

Light design: Ólafur Ágúst Stefánsson

Production: 10 Fingers and MurMur Productions; Ragnheiður Maísól Sturludóttir and Kara Hergils

Photo for poster: Margret Seema Takyar

Graphic design: Úlfur Arnalds

Bowls: Helga Arnalds, Eva Signý Berger and Valgerður Rúnarsdóttir