Afmælishátíð 10 fingra
Afmælishátíð 10 fingra í Tjarnarbíó!
Leikhúsið 10 fingur fagnar 30 ára afmæli á þessu ári og af því tilefni verður haldin vegleg afmælishátíð í Tjarnarbíó laugardaginn 12. janúar!
Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg:
Kl. 14:00 – Barnasýningin Lífið
Drullumall fyrir alla fjölskylduna! Þessi stórkostlega sýning hefur ferðast um heiminn síðustu 10 ár, við frábærar undirtektir, og slær alltaf í gegn.Kl. 15:00 – Afmæliskaka og samtal í kaffihúsi Tjarnarbíó
Við fögnum þessum tímamótum með ljúffengri afmælisköku og fróðlegu samtali.
Sigríður Jónsdóttir, verkefnastjóri á Þjóðminjasafninu, ræðir við Helgu Arnalds, stofnanda og listrænan stjórnanda 10 fingra, um ævintýralega sögu leikhússins síðustu 30 ár.
Á staðnum verður einnig hægt að kaupa bókina Skrímslið litla systir mín eftir Helgu Arnalds, ásamt tónlist eftir Eivøru Pálsdóttur sem fylgir bókinni.Kl. 18:00 – Líkaminn er skál
Nýjasta sýning leikhússins og jafnframt lokasýning á þessari hugvíkkandi og tilfinningaríku sýningu.
Að sýningu lokinni býðst gestum að taka þátt í skapandi leirstund undir leiðsögn Helgu, þar sem allir móta sína eigin skál. Spurningin er: Hvernig skál er þinn líkami?
Miðasala:
Hægt er að kaupa staka miða á sýningarnar eða báðar saman með góðum afslætti.
Vertu með okkur í þessum einstöku tímamótum þar sem við horfum bæði til fortíðar og framtíðar í anda leiklistar og sköpunar! Öll eru hjartanlega velkomin.