Að finna taktinn - Sóley Kristjánsdóttir

Sóley Kristjánsdóttir stekkur út í djúpu laugina og býður í miðaldra uppistand!

Þú gætir kannast við hlaðvarpið hennar "Að finna taktinn: Breytingaskeiðið", eða ekki.  

Þegar kona er að sigla inn í 46 árið sitt, sem á að vera leiðinlegasta ár lífs hverrar mannesku, þá er bara eitt til ráða: Láta gamlan draum rætast og skella í eitt stykki uppistand!

Að sjálfsögðu verður fókusinn á að finna taktinn í þessu lífi, eitthvað uppbyggilegt og jafnvel einhver misskilningur um þetta allt saman.

Takið kvöldið frá því síðast seldist upp