Svanurinn

,,Ást þín getur frelsað mig og ég þrái að frelsast”

Svanurinn eftir Elizabeth Egloff Er ævintýraleg ástarsaga – sem er bæði bráðfyndin og hjartnæm og fjallar um þrá okkar eftir ást og raunverulegum tengslum við aðra manneskju.

Dóra er ein heima seint um kvöld þegar Svanur brotlendir inn um gluggann hjá henni. Hún aumkar sig yfir hann og byrjar að hjúkra honum af alúð. Það fer heldur betur fyrir brjóstið á Kevin kærastanum hennar sem er mjólkurpóstur bæjarins og giftur annarri. Ekki skánar það þegar Svanurinn breytist í mann og fer að þvælast hálfnakinn um íbúð Dóru.

Þetta er vel skrifað og skemmtilegt leikrit um ótrúlegasta ástarþríhyrning sem um getur. Og áhorfandinn getur valið ( er í sjálfsvald sett) hvort hann lítur á söguna sem nútímadæmisögu um innilokun og frelsisþrá eða hreinlega sem draum um ástina einu.

Höfundur: Elizabeth Egloff

Íslensk þýðing: Árni Ibsen

Leikstjóri: María Ellingsen

Aðstoðarleikstjóri: Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir

Dramatúrgía: Kevin Kuhlke og Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir

Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson

Búningar: Íris Ólafsdóttir

Sviðshreyfingar: Sóley Ólafsdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Anna Róshildur

Leikarar: Kristín Þorsteinsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason og Nikulás Hansen Daðason.

Plakat og grafík: Ari Carl Lund

Ljósmyndir: Christopher Lund

Framleiðandi: Silfurskeiðin, leikfélag

Framkvæmdastjórn: Kristín Þorsteinsdóttir, Mímir Bjarki Pálmason og Nikulás Hansen Daðason.

Sýnt með leyfi Nordiska ApS