Sósíalistaþing
ÓKEYPIS VIÐBURÐUR - OPIÐ ÖLLUM
Kæru félagar!
Verið velkomin á Sósíalistaþing, laugardaginn 16. mars!
Sósíalistaþing er árleg uppskeruhátíð almennings á Íslandi sem berst fyrir betri lífskjörum.
Í ár hittumst við í Tjarnarbíó þar sem tveir af öflugustu foringjum hinnar alþjóðlegu verkalýðsbaráttu, Chris Smalls formaður Amazon Labour Union og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, taka sviðið og tala um stéttabaráttu okkar tíma.Eftir baráttufundinn í Tjarnarbíó liggur leið okkar á opnunarhátíð Vorstjörnu - Alþýðuhúss, félagsheimilinu okkar í Bolholti 6.Í Alþýðuhúsinu getum við kynnt okkur þau félög sem eiga heima í Alþýðuhúsinu og rætt baráttu þeirra. Hvað viltu vita um Sósíalistaflokkinn, Samstöðina, Leigjendasamtökin, Unga Sósíalista, Sósíalíska feminista, Immigrants of Iceland/Innflytjendur á Íslandi, Vorstjörnuna eða PEPP -félag fólks í fátækt?Þegar kvölda tekur sláum við upp Sósíalistaballi með DJ og skemmtum okkur saman fram undir miðnætti! Snarl í boði.Verið öll hjartanlega velkomin! Skráning á viðburðinn er á Facebook.Sósíalistaþing er ókeypis viðburður og opinn almenningi-Dagskrá laugardaginn 16. mars-Tjarnarbíó:
Baráttufundur
kl. 10-12
Morgunverðarhressing og fundur með Chris Smalls og Sólveigu Önnu.
Umræður í panel að loknum erindum.Vorstjarnan - Alþýðuhús: Uppskeruhátíð í Bolholti 6
kl. 13-16
Spjall, léttar veitingar og tónlist
Kl. 20-24
Sósíalistaball með DJ
