Pabbareif

Pabba Reif er nýtt dansverk eftir Önnu Kolfinnu Kuran unnið í náinni samvinnu við og flutt af hópi feðra og börnum þeirra sem eru 13 ára og eldri.

Saman búa flytjendurnir til reif þar sem öll hafa frelsi til að tjá og hreyfa sig eins og þau vilja við tónlist að eigin vali. Í verkinu skapast rými fyrir feður til þess að tengjast börnum sínum gegnum dans og tónlist.

Feðurnir eru hópur karlmanna úr ólíkum áttum í samfélaginu og ekki endilega með sviðsmenntun eða reynslu. Í verkinu berskjalda þeir sig gegnum hreyfingu en valdefla um leið, kollvarpa úreltum hugmyndum um karlmennsku og feðrahlutverkið.

Rýmið er þeirra og barnanna og saman eru þau hugrökk, einlæg og geislandi hvert á sinn hátt. Pabba Reif er verk þar sem dansgleði og grúf ræður ferðinni, þar sem hópur feðga/feðgina sameinast í augnablikinu og bíður áhorfendum að upplifa sameiningarkraft dansins.

Við óskum eftir feðgum og feðginum til að taka þátt í sköpun og flutningi Pabba Reifs! Æfingar fara fram í janúar og febrúar 2027 og frumsýning áætluð í byrjun mars. Við hvetjum öll áhugasöm að hafa samband hér: annakolfinna@gmail.com

Listrænt teymi Pabba Reifs samanstendur af Önnu Kolfinnu Kuran danshöfundi, Ívari Pétri Kjartanssyni tónlistarmanni og plötusnúði og Guðnýju Hrund Sigurðardóttur leikmynda- og búningahönnuði. Áður unnu þau saman að fyrstu útgáfu verkefnisins Femínískt Reif (2022) og brenna fyrir að halda áfram að þróa hugmyndina, nú með pöbbum! Verkefnið er með styrk frá Reykjavíkurborg