Ókyrrð
Ókyrrð er gamanleikur um háska í háloftunum eftir verðlaunaskáldið Brynju Hjálmsdóttur. Leikritið hverfist um fjórar persónur sem allar stefna í ólíkar áttir og trúa því staðfastlega að þeirra leið sé sú eina rétta. Verkið fjallar um þrána eftir jafnvægi í óstöðuleikanum og óuppfylltar óskir um að hafa stjórn á eigin tilveru, í heimi þar sem ekkert lætur að stjórn og rannsakar spurninguna um hvort fólkið sem stendur manni næst er raunverulega að hjálpa, eða fremja valda rán?
“Afsakið ókyrrðina þarna áðan, það gæti orðið stormasamt á leiðinni.”
Höfundur: Brynja Hjálmsdóttir
Leikstjóri: Silja Hauksdóttir
Leikarar: Bára Lind Þórarinsdóttir, Silja Rós Ragnarsdóttir og fleiri.
Leikmynd: Egle Sipaviciute
Ljósahönnun: Ásta Jónína Arnardóttir
Búningar: Hildur Kaldalóns
Framleiðandi: Sara Rut Arnardóttir, Bára Lind Þórarinsdóttir og Silja Rós Ragnarsdóttir í samstarfi við Leikfélagið Rísandi.
