Innblástur
Í blöðruverksmiðjunni Blöðrur ehf. starfar metnaðarfullt og duglegt fólk. Til að tryggja örugg gæði og ánægju viðskiptavina er mikilvægt að allt starfsfólk fari eftir settum reglum og taki vinnunni alvarlega. Það er bannað að mæta seint, bannað að taka of langar pásur og bannað að blaðra. Það er þó ein regla sem er mikilvægust af þeim öllum:
ÞAÐ ER BANNAÐ AÐ LEIKA SÉR MEÐ BLÖÐRURNAR!
(og ekki gleyma að fara eftirlitshringinn)
Innblástur er glæný barnasýning sem fjallar um leikgleðina, sköpunarkraftinn og að kannski séu sumar reglur til að brjóta þær. Í sýningunni er lítið tal svo tungumálakunnátta setur engin mörk. Innblástur er leiksýning fyrir börn á öllum aldri sem vilja leika sér.
Aðstandendur:
Leikarar, höfundar og sviðshreyfingar: Jökull Smári Jakobsson og Nikulás Hansen Daðason
Leikstjóri: Jónsi Hannesson
Dramatúrg og aðstoð við sviðshreyfingar/dans: Lea Alexandra Gunnarsdóttir
Búningar og leikmynd: Bryndís Ósk Ingvarsdóttir
Tónlist: Sveinbjörn Thorarensen og Hrafnkell Örn Guðjónsson
Lýsingarhönnuður: Ásta Jónína Arnardóttir
Sviðsmaður: Alex Gló Svarthöfði
Ekkert tal er í sýningunni - og hentar hún þar af leiðandi öllum þvert á tungumálakunnáttu
Sýningin hentar fyrir börn 5 ára og eldri
Verkefni unnið með sérstökum styrk frá Reykjavíkurborg
