English text below
Hefurðu einhvern tímann velt fyrir þér sögu Færeyja?
Nei? Tja, það er þá leiðinlegt. Þú ert hvort eð er að fara að heyra um hana.
History of the Faroe Islands (Please Don’t Laugh) er djúpt alvarleg yfirferð um fortíð Færeyja þar sem enginn brandari kemur við sögu. Bara staðreyndir sem þú baðst aldrei um og munt líklega gleyma strax aftur (og það er alveg í lagi).
Í eitt skipti fyrir öll erum við sem þjóð að reyna að vera tekin alvarlega og þessi sýning er hluti af þeirri viðleitni.
Færeyski grínistinn David Valley fer með áhorfendur í gegnum víkingasögu, þjóðernishyggju, dönsk yfirráð, sauðfjártengda innviði og þá sérstæðu reynslu að alast upp í landi sem fólk er ekki alveg sannfært um að sé raunverulegt.
Búast má við ítarlegri, 100% fræðilegri greiningu byggðri á sagnfræðilegum heimildum og nútímarannsóknum. Umfjöllunarefni gætu meðal annars verið einhver víkingasögudæmi, nýrri tíma saga og stöku tilraunir til að útskýra af hverju Færeyjar eru með eigið tungumál, eiginn fána og eigið landslið í fótbolta þrátt fyrir að hljóma örlítið uppspunnið.
Það verða einnig PowerPoint glærur, áhorfendaþátttaka, lög og mögulega leikur.
Sýningin hefur áður selst upp í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Tallinn og Þórshöfn. Sem hefur komið öllum á óvart, sérstaklega Færeyingum.
David Valley hefur síðasta árið ferðast milli landa og reynt að sannfæra fólk um að Færeyjar séu meira en „þessar litlu eyjar nálægt Íslandi með bátunum og fuglunum.“
Svo hallaðu þér aftur, slakaðu á og gerðu þig tilbúinn til að læra allt um mjög lítið. Söguna, menninguna og örlítið örvæntingarfulla tilraun eins manns til að útskýra Færeyjar fyrir umheiminum.
Ekki hafa áhyggjur. Þetta er leiðinlegra en það hljómar.
Eina sýningin um sögu Færeyja í öllum heiminum.
Og hvað sem þú gerir, vinsamlegast ekki hlæja.
Sýningin er á ensku • 60 mínútur • 18+
English
Ever wondered about the history of the Faroe Islands?
No? Well, too bad. You’re going to hear about it anyway.
History of the Faroe Islands (Please Don’t Laugh) is a deeply serious exploration of the Faroese past, featuring no jokes whatsoever. Only facts you never asked for and will probably forget immediately afterward (and that’s perfectly fine).
For once, we as a nation are trying to be taken seriously, and this show is part of that effort.
Faroese comedian David Valley guides the audience through Viking history, nationalism, Danish rule, sheep-related infrastructure and the unique experience of growing up in a country most people are not entirely convinced is real.
Expect a thorough, 100% academic analysis grounded in historical records and contemporary research. Topics may include some Viking history stuff, some more recent history stuff, and occasional attempts to explain why the Faroe Islands have their own language, flag and football team despite sounding vaguely invented.
There will also be PowerPoint slides, audience interaction, songs and possibly a game.
The show has previously sold out in Reykjavík, Copenhagen, Tallinn and Tórshavn. Which has been surprising for everyone involved, especially the Faroese.
David Valley has spent the last year traveling internationally trying to convince audiences that the Faroe Islands are more than “the small islands near Iceland with the boats and birds.”
So sit back, relax, and prepare to learn everything about very little. The history, the culture, and one man’s slightly desperate attempt to explain the Faroe Islands to the outside world.
Don’t worry, it’s more boring than it sounds.
The only show about Faroese history in the whole world.
And whatever you do, please don’t laugh.
Performed in English • 60 minutes • 18+
