Gunni og Felix - Jól á náttfötunum

Þá Gunna og Felix þarf sennilega ekki að kynna fyrir neinum enda hafa þeir glatt börn á öllum aldri í áratugi og verið brennandi í áhuga sínum og ástríðu fyrir barnamenningu. Nú bjóða þeir félagarnir - ásamt Karli Olgeirssyni - börnum og fylgdarfólki á dásamlega jólastund í Tjarnarbíó.

Gegnum tíðina hefur Felix gefið Gunna sérlega góðar jólagjafir og þessi jól ætlar Gunni að launa vini sínum hugulsemina og gefa Felix bestu jólagjöf í heimi. Nú er gjöfin góða á leiðinni og bæði Gunni og Felix eru að farast úr spenningi rétt eins og öll börn sem bíða jólanna með fiðrildi í maganum.