Fólk

Hvað gerist þegar aldagamlar rímur mæta popptónlist? Í FÓLK sameinar Milkywhale kraft kórsöngs, raftónlistar og dans í sviðsupplifun þar sem íslenskur kvæðaarfur fær nýtt líf. Gamlar vísur umbreytast í takta, söng og hreyfingu og fortíðin mætir nútímanum í sameiginlegri hátíð um fólk, röddina og samfélagið.

Poppdúettinn Milkywhale er skipuð Árna Rúnar Hlöðverssyni (FM Belfast) tónlistarmanni og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur dansara og söngkonu. Milkywhale hefur verið lýst sem „skál af skittles, toppaðri með sjöföldum expressó blandað saman við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp og trampólín að morgni jóladags“. Hljómsveitin hefur getið sér gott orð sem danshljómsveit og hefur meðal annars komið fram á Hróarskeldu, Reeperbahn og fjölda annarra tónlistarhátíða. Nú stígur Milkywhale á svið ásamt kvæðakór í nýju tónleikaverki. 

Höfundur: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir

Tónlist og hljóðmynd: Árni Rúnar Hlöðversson

Leikmynd og búningar: Sigríður Ágústa Finnbogadóttir

Flytjandi: Melkorka Sigríður Magnúsdóttir (Milkywhale) ásamt Kvæðakór

Framleiðsla og framkvæmdastjórn: Milk & Kleina 

Ljósmyndari: Eygló Gísladóttir 

Grafík: Emil Ásgrímsson