Djúpið

Ungur íslenskur sjómaður á sér draum um að flytja að heiman, að bjóða stelpunni sem hann er skotinn í á deit og að eignast 74’ Plymouth Barracuda. En þegar hann stígur um borð í togarann Hellisey VE 503 þá örlagaríku nótt 11. Mars 1984, ógnar djúpið öllum framtíðarplönum hans og vonum.

“Þegar skipsskaðar hafa orðið undan ströndum landsins og enga hjálp verið að fá,

hafa menn stundum orðið að freista þess að synda í land. Þetta verk er tileinkað þeim

sem hafa lagt upp í það ferðalag. Hvar svo sem það endaði.”

Sagan af Guðlaugi Friðþórssyni er íslendingum vel kunnug sem hetju- og harmsaga íslenska sjómannsins. Í vor mun einleikurinn eftir Jón Atla Jónasson fara á fjalir Tjarnarbíós með spennandi nýjum leikara, leikstjóra og tónlistarskáldi.

Höfundur: Jón Atli Jónasson

Leikari: Vilberg Andri Pálsson

Leikstjórn: Ebba Katrín Finnsdóttir

Tónlist: Jóhannes Damian Patreksson