CARMEN

Kammeróperan snýr aftur í Tjarnarbíó með eina af vinsælustu óperum sögunnar í glænýjum búning.

Stolt, ástríða og afbrýðisemi eru rauði þráðurinn í Carmen eftir Georges Bizet. Don José, ungur skyldurækinn hermaður, verður hugfanginn af hinni heillandi og óútreiknanlegu Carmen. Svo ákaft brennur hjarta hans af þrá að ekkert getur stöðvað hann í að hlaupast á brott með henni, ekki einu sinni æskuástin Michaëla. Don José kastar lífi sínu á glæ fyrir spennu og óvissu en brigðul er kvenna ást. Escamillo, heimsfrægur nautabani, rennur nefnilega einnig hýru auga til Carmen og þá vandast málin. Sviðið er klárt og rómantísk ástarsagan stefnir óumflýjanlega í hryllilegan harmleik.

Kammeróperan, sem hefur fyrir löngu sannað sig sem einn kraftmesti óperuhópur landsins, heldur nýstárlegri yfirferð sinni á klassíkinni áfram og flytur Carmen á íslensku í glænýrri útsetningu sem er einungis ætluð fjórum söngvurum og einum leikara.

Adolf Smári Unnarsson leikstýrir og þýðir textann en hann hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir óperuverkefni sín á borð við BRÍM og Ekkert er sorglegra en manneskjan. Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara og sjáðu sígilda tónlistina vakna til lífsins í spennandi, eggjandi og átakamikilli uppfærslu.

Hlutverk:

Carmen - Kristín Sveinsdóttir

Don José - Eggert Reginn Kjartansson

Escamillo - Unnsteinn Árnason

Michaëla - Jóna G. Kolbrúnardóttir

Zuniga - Fjölnir Gíslason

Hljómsveit:

Una Sveinbjarnardóttir, fiðla

Flemming Valmundsson, harmonika

Jacek Karwan, kontrabassi

Listrænt teymi:

Leikstjórn og þýðing: Adolf Smári Unnarsson

Aðstoðarleikstjórn: Anna Kjeldahl

Leikmynd og búningar: Andri Hrafn Unnarson

Ljós: Fjölnir Gíslason

Hár og förðun: Íris Sveinsdóttir

Ljósmyndir: Sandijs Rukluks

Grafísk hönnun: Gunnar Ólafsson

Framleiðsla: Kammeróperan