Bústaðurinn

Bústaðurinn er nýtt íslenskt leikrit.

Bogga og Teddi eru í sumarbústaðnum, “yndislega sælureitnum”. Allt leikur í lyndi þegar... þau verða skyndilega vör við aðkomumanninn. Meinlaus portrett-teiknari hefur enn á ný tyllt sér á sólstól fyrir utan hliðið hjá þeim! Hann umturnar lífi þeirra með nærveru sinni einni saman!

Bústaðurinn er grátbroslegur gleðileikur eða ljúfsár íslenskur fáránleikafarsi sem kitlar hláturtaugar áhorfenda en varpar samtímis upp áleitnum spurningum um samfélag okkar. Um er að ræða fimmtu sýningu sem atvinnuleikhópurinn Svipir setur á svið en sú síðasta var barnaleikritið Hollvættir á heiði sem hlaut Grímuverðlaun sem Barnasýning ársins á Grímuverðlaunahátíðinni 2024. Sama listræna teymið og stóð að uppsetningu Hollvættana kemur hér saman á ný með glænýtt íslenskt verk.

Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir

Leikmynd og búningar: Þórunn María Jónsdóttir

Leikskáld: Þór Tulinius

Ljósahönnun: Ólafur Ágúst Stefánsson

Hljóðmynd: Logi Pedro Stefánsson

Leikarar:

Teddi: Þór Tulinius

Bogga: Þórunn Lárusdóttir

Portrettteiknarinn: Jónmundur Grétarsson

Framkvæmdastjórn: Atvinnuleikhópurinn Svipir