Bremsulaus - Birna Rún
Birna Rún mætir með einlægnina og hreinskilnina að vopni. Hún segir það sem við hin þorum varla að hugsa og lætur engan komast upp með neitt. Eftir langtímasamband, nokkur börn og samfélag í stöðugri sjálfskoðun fer hún yfir alls konar hluti með beittum húmor og heiðarleika
Bremsulaus er glænýtt og sprenghlægilegt uppistand frá allt múligt konunni Birnu Rún Eiríksdóttur!