Árstíð í helvíti

„Arthur Rimbaud er einn mikilvægasti vígslumeistari vestrænnar ljóðlistar.“  

Segir Sigurður Pálsson um „skálddrenginn“, „barnunga brjálæðinginn“, „punk barnið“, „fyrsta hippann“. Þetta undrabarn sem birti sín fyrstu ljóð 15 ára gamall og hætti að yrkja tvítugur.  

 

Í sviðslistaverkinu „Árstíð í helvíti ræðst Lab Loki til atlögu við ljóðheim og lífshlaup Arthurs Rimbaud. 

Ljóðabálkur hans Árstíð í helvíti er útgangspuktur og vegvísir Lab Loka í krufningu á trylltum samtíma. Undir smásjánni verða vald og undirgefni, mörk og markleysi, ofbeldi og óreiða, vanmáttur og uppreisn, átök kynslóða, hinseginleiki, fíkn og pólitísk róttækni.   

Ögrandi og kraftmikill listviðburður sem nýtir sér tónlist, óhefta líkamstjáningu í bland við agaða hreyfilist og dans, textaflutning, rokk og ról.  

Því eins og Rimbaud leitar Lab Loki að guði sem kann að dansa. 

 

Þátttakendur: 

Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson 

Tónlist og hljóðheimur: Guðni Kjartan Franzson 

Sjónrænt útlit: Filippía Ingibjörg Elísdóttir, Arnar Ingvarsson o.fl. 

 

Flytjendur: 

Arnar Jónsson, Árni Pétur Guðjónsson, Helga Elínborg Jónsdóttir, Margrét Þórey Stefanía Guðmundsdóttir, Sigurður Edgar Andersen, Sigurður Skúlason, Steinunn Ketilsdóttir, Valgerður Rúnarsdóttir o.fl.