Ariasman
Ariasman er áhrifa- og átakamikið leikverk um eitt mesta óhæfuverk Íslandssögunnar, Baskavígin. Að haustlagi 1615 var 31 baskneskur skipsbrotsmaður veginn af vestfirskum bændum. Ariasman er leikgerð sem er byggð á samnefndri sögulegri skáldsögu Tapio Koivukari, um Baskavígin sem eru í raun fyrstu og vonandi einu fjöldamorð Íslandssögunnar. Þessir hrottalegu atburðir gerðust fyrir vestan haustið 1615 þegar 31 baskneskur skipbrotsmaður var veginn á miskunarlausan hátt af vestfirskum bændum undir forystu Ara Magnússonar, sýslumanns í Ögri, en Baskarnir þekktu hann undir nafninu Ariasman.
Sýningartími: 80 mín. með 15 mín. hléi
Höfundur Tapio Koivukari/ Leikari Elfar Logi Hannesson / Ljós Sigurvald Ívar Helgason /
Búningahönnuður Þ. Sunnefa Elfarsdóttir / Tónlist Björn Thoroddsen / Leikmynd og leikstjórn Marsibil G. Kristjánsdóttir