FJÖLSKYLDUKORTIÐ
Með Fjölskyldukortinu er hægt að gerast áskrifandi að öllum þeim Barna- og fjölskyldusýningum sem Tjarnarbíó hefur að bjóða þennan leikveturinn. Þannig tryggir þú þér miða áður en sýningar fara í almenna sölu og getur valið þér bestu sætin í húsinu. Ekki nóg með það, heldur færðu 30% afslátt af miðaverði hverrar sýningar. Þú velur að lágmarki tvær sýningar en það eru engin efri mörk og hægt er að kaupa allt að 6 miða á hverja sýningu. Þetta er tilvalið tækifæri að tryggja sér miða á allt það besta fyrir börnin sem Tjarnarbíó hefur upp á að bjóða. Miðana færðu svo senda í tölvupósti. Einfaldara gæti það ekki verið.
Upplýsingar um allar sýningarnar má finna á ,,kaupa miða" hlekknum hér fyrir ofan eða á forsíðunni!